Tvö tilboð bárust í viðamiklar gatnaframkvæmdir í Flóahverfi

Tvö tilboð bárust í viðamikið verkefni í gatnagerð í Flóahverfi á Akranesi. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar í verkið nam rétt rúmlega einum milljarði kr. eða 1026 milljónum kr. 

Tilboðin sem bárust eru bæði töluvert undir kostnaðaráætlun. 

Borgarverk ehf. bauð 826.040.942 kr. sem er 80,5% af kostnaðaráætlun. 

Þróttur ehf. bauð 835.738.899 kr. sem er rétt rúmlega 81,5% af kostnaðaráætlun. 

Skipulags- og umhverfisráð fól umhverfisstjóra að yfirfara tilboðin í samvinnu við Veitur.