Sjáðu markið þegar Daníel Ingi bætti 34 ára gamalt met

Skagmaðurinn efnilegi, Daní­el Ingi Jó­hann­es­son, tryggði ÍA 1-0 sigur gegn Ægi í Þorlákshöfn þegar liðin áttust við í Lengjudeildinni s.l. föstudag. 

Daníel Ingi varð þar með yngsti leikmaðurinn í sögu ÍA til að skora mark í deildarleik fyrir karlaliðið. Daníel Ingi var 16 ára og 67 daga gamall þegar hann skoraði markið. Arnar Bergmann Gunnlaugsson átti metið þegar hann skoraði fyrir ÍA gegn Keflavík árið 1989 

Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is mun Daníel Ingi ganga í raðir danska úrvalsdeildarliðsins Nord­sjæl­land en Daníel Ingi samdi nýverið við félagið. 

Þar með fetar hann í fótspor eldri bróður síns en Ísak Bergmann Jóhannesson leikur með FCK í Kaupmannahöfn. 

Markið má sjá hér fyrir neðan hjá ÍATV.