Listfélag Akraness „Gengur að göflunum“ með sumarsýningu á Bókasafni Akraness

Listfélag Akraness stendur fyrir sumarsýningu á Bókasafni Akraness. 

Heiti sýningarinnar er „Gengið að göflunum“ og verður sýningin opnuð með formlegum hætti föstudaginn 16. júní kl. 16:00. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 

Hátt í 30 listamenn félagsins taka þátt í viðburðinum. Gaflar bókarekka safnsins verða nýttir sem rými fyrir listaverkin. Þaðan er heiti sýningarinnar komið. Stærri verk verða hengd upp í glugga safnsins. 

„Gengið að göflunum“ verður opin frá og með föstudeginum 16. júní og stendur allt fram til loka ágústmánaðar. 

Sýningin verður opin á opnunartíma Bókasafns Akraness í sumar.