Getraunahópur ÍA landaði tæplega 5 milljónum í fyrstu umferð enska boltans

Fjölmennur hópur stuðningsmanna ÍA í knattspyrnu hefur á undanförnum árum og áratugum verið með öflugt starf sem tengist því að tippa á leiki í ensku knattspyrnunni – í gegnum Íslenskar getraunir, 1×2.  

Alls eru 75 virkir félagsmenn í getraunahópnum og hittu þeir á þann stóra í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þar var hópurinn með 13 rétta leiki af alls 13. 100% árangur og fékk hópurinn 4,5 milljónir kr.  

Í tilkynningu um afrekið á heimasíðu Íslenskra getrauna segir Guðlaugur Gunnarsson talmaður hópsins. 

„Við fest­um leik 1 og leik 13 og spáðum því að Newcastle og WBA myndu vinna sína leiki sem gekk eft­ir. Síðan skár­um við niður raðir og notuðum til þess kerfi Get­rauna á vefn­um og niðurstaðan varð 13 rétt­ir.“ 

Mark­miðið með get­rauna­starf­inu er að styðja mynd­ar­lega við starfið hjá ÍA.

Í fyrra spilaði hver og einn fyr­ir um það bil 300 krón­ur á viku að frá­dregn­um vinn­ing­um. Mér sýn­ist allt stefna í að við kom­um út í plús á þessu keppn­is­tíma­bili,“ segir Gunnlaugur ennfremur.