Íþróttasalnum og kjallara í íþróttahúsinu við Vesturgötu verður lokað frá og með fimmtudeginum 21. september vegna ófullnægjandi loftgæða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað og er þetta gert eftir úttekt Verkís á húsnæðinu sem framkvæmd var í september 2023.
Ljóst er að framundan er viðamikið verk við endurhönnun og framkvæmdir við íþróttahúsið sem ná til alls hússins að undanskildu suðuranddyri, búningsklefum, fimleikahúsi og Þekju.
Endurnýja þarf allt þakið að innanverðu. Með því að setja þar upp rakavarnarlag. Víða má sjá ummerki um gamla leka í lofti. Endurnýja þarf gaflvegg og rakaskemmt efni í áhorfendastúku og breyta þrifum.
Úttektin leiddi í ljós ófullnægjandi rakavarnarlag í þaki, ónýtt byggingarefni í neðri hluta þaks, gaflveggjum og í veggjum ofan við áhorfendastúku. Einnig kemur fram að loftræsingu salarins er ábótavant.
Hér er hægt að lesa minnisblaðið í heild sinni.
Tekin hefur verið ákvörðun um að ráðast strax í endurbætur og loka íþróttasal og kjallara hússins frá og með fimmtudeginum 21. september n.k. Búið verður þannig um væntanlegt framkvæmdarsvæði að hægt verður að halda áfram starfsemi í fimleikahúsi og Þekju, ásamt því að nýta búningsklefa og anddyri við fimleikahús (suðuranddyri).
Náið samráð verður haft við forsvarsmenn notenda hússins við gerð aðgerðaráætlunar þar sem markmiðið er að halda áfram úti skóla- og íþróttastarfi sem fram hefur farið í húsinu, á verktímanum. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og útfærslu verða sendar til þeirra sem málið varðar af skólastjórnendum, framkvæmdarstjóra ÍA og forstöðumanni íþróttamannvirkja og íþróttamála.
Bæjaryfirvöld munu á næstunni vinna að nákvæmri tímalínu, hönnun og útboði í tengslum við endurbæturnar á íþróttahúsinu en leitast verður við að stytta verktímann eins og kostur er. Frekari upplýsingar verða veittar eftir því sem þær liggja fyrir.