Hér er hlekkur á íbúafund um breytt skipulag á Jaðarsbakkasvæðinu

Íbúafundur fer fram í kvöld, mánudaginn 23. október, í Bíóhöllinni á Akranesi þar sem að tillögur að breyttu skipulagi á Jaðarsbakkasvæðinu verða kynntar.

Fundurinn hefst kl. 19:30 og er áætlað að hann standi yfir í 2 klukkustundir.

Fundurinn verður í beinn netútsendingu og er hlekkurinn hér fyrir neðan.

Nordic arkitektar, Basalt arkitektar og Sei arkitektar, kynna þar tillögur sínar að breyttu skipulagi Jaðarsbakkasvæðisins.

Á fundinum verða að auki kynntar helstu niðurstöður starfshóps um stefnumótun vegna uppbyggingar á Jaðarsbökkum, ásamt því að Viðar Halldórsson, prófessor við Háskóla Íslands, verður með erindi.

Í mars á þessu ári skrifuðu Akraneskaupstaður, Ísold fasteignafélag, Íþróttabandalag Akraness (ÍA) og Knattspyrnufélag Akraness undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu við Langasand.

Þar er m.a. gert ráð fyrir hóteli, baðlóni og heilsulind á svæðinu.

Gert var ráð fyrir íbúðabyggð þegar samkomulagið var undirritað en fallið hefur verið frá þeirri hugmynd.