Metfjöldi viðburða á dagskrá Vökudaga sem hefjast í dag

Það verður mikið um að vera í menningarlífinu á Akranesi næstu daga – en Vökudagar hefjast í dag, fimmtudaginn 26. október, með formlegum hætti.  Menningarhátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður hér á Akranesi og að venju er dagskráin fjölbreytt. Aldrei áður hafa jafn margir viðburðir verið settir á dagskrá hátíðarinnar. 

Vökudagar verða settir í dag kl. 17.00 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans. Þar verða veitt Menningarverðlaun og Umhverfisverðlaun. 

Listaganga tekur við eftir setninguna þar sem að listafólk bæjarins býður öll velkomin á sýningar og opnar vinnustofur sem eru staðsettar víðsvegar um bæinn. 

Tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGI verður á sínum stað ásamt Lilló hardcore fest – sem er harðkjarna og pönk tónleikar.

Smelltu á myndirnar hér fyrir neðan til að rýna í þá viðurði sem eru í boði.  

Dagskrá Vökudaga er í heild sinni hér: