Kaja Organic fékk styrk frá Uppsprettunni – nýsköpunarsjóði Haga

Kaja Organic á Akranesi er á meðal tólf íslenskra frumkvöðla í matvælaframleiðslu sem fengu styrk frá Uppsprettunni, nýsköpunarsjóði Haga. Frá þessu er greint á heimasíðu Haga. 

Karen Jónsdóttir frá Kaja organic og Ebba Guðný frá Pure Ebba fengu styrk fyrir framleiðslu á glútenlausum pizzubotnum þar sem brauðblanda frá Kaju er grunnurinn og uppskriftin kemur frá Ebbu.

Ebba Guðný, Finnur Oddsson forstjóri Haga og Karen Jónsdóttir, eigandi Kaja Organic.  Mynd/Blik Studio.

Markmiðið með sjóðnum er að stuðla að nýsköpun í matvælaiðnaði og efla íslenska matvælaframleiðslu og er stefnt að því að vörurnar verði fáanlegar í hillum verslana Haga innan tíðar.

Þetta er í þriðja sinn sem Uppsprettan veitir styrki en eftirfarandi verkefni fengu styrk. Nánar á heimasíðu Haga

Kaja og Ebba:

Karen frá Kaja organic og Ebba Guðný frá Pure Ebba hafa tekið höndum saman og eru að þróa frosna glútenlausa pizzabotna þar sem brauðblanda Kaju er grunnurinn og uppskriftin kemur frá Ebbu.

Arctic Pies:

Frumkvöðlafyrirtæki sem framleiðir fyrst og fremst bökur að áströlskum hætti. Bökurnar eru gerðar alveg frá grunni úr smjördeigi og til eru mismunandi gerðir, t.d. kjötbökur, grænmetis/vegan og sætar bökur.  Bökurnar hafa verið seldar á matarhátíðum við miklar vinsældir og verða núna seldar í verslunum.

Casa Italia:
Er íslenskt frumkvöðlafyrirtæki sem framleiðir íslenskt ferskt pasta og notar auðvitað íslenska vatnið í sína framleiðslu. Þau munu framleiða mismunandi pasta ss: spaghettí, penne, fusilli ásamt fylltu pasta og lasagna. 

Dragon Dim Sum:
Er frumkvöðlafyrirtæki sem hefur verið að selja Dragon Dim Sum „dumplings“ til veitingahúsa. Nú fáum við að njóta þess að kaupa óeldað „dumplings“ ásamt Dragon Dim Sum sósum í verslunum og elda heima, enda eru þeir langbestir nýeldaðir.

Fimma:
Er frumkvöðlafyrirtæki sem framleiðir frostþurrkað ávaxta- og grænmetisduft úr grænmeti og ávöxtum sem annars væru vannýtt. Duftið er ætlað til notkunar í drykki eins og búst og auðveldar fólki inntöku grænmetis og ávaxta sem hjálpar þeim að uppfylla neysluviðmið landlæknis.

Fine Foods Íslandica:
Er frumkvöðlafyrirtæki sem er fyrst á Íslandi til að framleiða þang (seaweed) og nýta það áfram í þróun á kryddum og öðru sem bragðbætir matinn.  Þangið er framleitt á umhverfisvænan hátt.

Hreppamjólk:
Fjölskyldubúið Hreppamjólk ætlar að koma með á markað gerilsneyddar og ófitusprengda drykkjarjógúrt án sykurs. Við munum fá að njóta nokkurra bragðtegunda í nýju jógúrtlínunni.

Íslensk Sveppasósa:
Er frumkvöðlafyrirtæki sem ætlar að þróa úrvals sósublöndu úr villtum vestfirskum sveppum. Þau munu nota bæði lerki- og furusveppi í sínar vörur.

Loki Foods:
Frumkvöðlafyrirtæki sem framleiðir matvæli sem líkjast kjöti og fisk úr grænmetisafurðum. Spennandi vöruframboð fyrir vegan og grænkera.

Svava sinnep:
Er íslenskt matarhandverk sem að grunni er byggt á sænskri sinnepshefð en er að öllu leiti framleidd hér á Íslandi. Nú verður hægt að fá Svövu sinnep í gjafaumbúðum, hin fullkomna tækifærisgjöf.

Sýra:
Er frumkvöðlafyrirtæki sem hefur verið að framleiða íslenskt Kimchi fyrir veitingahús. Nú verður hægt að fá alíslenskt súrsað grænmeti úr íslensku hráefni í verslunum. Fyrsta varan verður sterkt og bragðgott Kimchi.

Treatalicious:
Er frumvöðlafyrirtæki sem ætlar að bjóða íslenskum hundaeigendum upp á fyrsta flokks nammi fyrir hundana sína.  Hundanammið verður framleitt úr hliðarafurðum sláturhúsa.