Fjögurra ára langveik stúlka fær stuðning frá öflugum hópi Skagamanna

Árlegt jólakótelettukvöld pilta-hluta Club71 fór fram nýverið en félagsskapurinn er fólk sem fæddist árið 1971 á Akranesi. 

Markmiðið Club 71 er að sameina það að gleðjast og láta gott af sér leiða í leiðinni. 

Í tilkynningu frá félginu kemur fram að jólakótelettukvöldið hafi tekist ljómandi vel þó með árunum séu félagar farnir að sofa töluvert fyrr en gert var á árum áður.

Fjöldi góðra gesta mætti á hátíðina en boðið var upp á kótelettur í raspi með tilheyrandi meðlæti og ljúffengan eftirrétt.

Góðir skemmtikraftar kíktu í heimsókn.

Hátíðarræðan var í höndum heiðursgests kvöldsins, Vilhjálms Birgissonar verklýðsleiðtoga og var glæsileg eins og við var að búast.

Nafni hans, Vilhjálmur Árnason, alþingismaður úr Grindavík, sagði frá stöðu mála varðandi Grindavík og Grindvíkinga. 

Hefð er fyrir því að styrkja gott málefni á kótelettukvöldinu og í ár var ákveðið að styrkja fjögurra ára, langveika stúlku úr Grindavík, Rózu, en hún er með erfðagalla og þarf að hafa mun meira fyrir lífinu en flest við hin. 

Hún er einmitt að flytja á Akranes og byrjar þar í leikskóla á næstu dögum. Faðir hennar, Juliusz Śniadewicz, mætti til að taka við styrknum fyrir hennar hönd.

Club71 eða árgangur 71 á Akranesi er óvenju samheldinn og hefur staðið fyrir ýmsum góðgerðarmálum og menningarviðburðum á Akranesi síðustu 20 árin eða svo. Ber þar hæst Þorrablót Skagamanna sem hópurinn kom í gang og sá um í 10 ár samfellt, en þessi viðburður hefur gefið af sér nokkrar milljónir árlega sem runnið hafa óskipt til góðgerðar- og íþróttamála á Akranesi. Einnig mætti nefna Brekkusöng bæjarhátíðarinnar Írskra daga sem er bæjarhátíð Akraness, en þennan viðburð sækja þúsundir manna á ári hverju í boði hópsins og samstarfsaðila.

Ýmsir einstakir viðburðir hafa verið haldnir á vegum félagsskaparins í gegnum tíðina en hópurinn fékk Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar árið 2016. 

Árið 2021 stóð félagsskapurinn fyrir viðburðinum „Stokkið fyrir Svenna.“ Tilgangurinn var að safna áheitum til kaupa á sérsmíðuðu rafhjóli fyrir einn úr árganginum, Sveinbjörn Reyr, sem lenti í alvarlegu slysi fyrir tveimur árum áður. Viðburðurinn fór langt fram úr væntingum og 177 stökkvarar stukku í sjóinn af smábátabryggjusvæðinu á Akranesi.

Rúmlega 8 milljónir króna söfnuðust og síðasta sumar var fjölsóttur viðburður þegar bæjarbúum bauðst að fara í hjólatúr með Svenna og félögum um Akranes.