Flottur árangur hjá sundfólki úr röðum ÍA á sterku alþjóðlegu móti

Sundfólk úr röðum ÍA náði góðum árangri á alþjóðlega mótinu Reykjavík International sem fram fór um liðna helgi.

Þrjú Akranesmet voru bætt, lágmarki fyrir Evrópumeistaramót var náð og tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun komu á Skagann.

Alls voru 8 keppendur frá ÍA en yfir 300 keppendur tóku þátt á þessu sterka móti og komu þeir frá 12 löndum.

Einar Margeir Ágústsson náði lágmarki fyrir Evrópumeistaramótið í 50 m. laug sem fer fram í Serbíu sumarið 2024. Hann sigraði í 50 m. bringusundi á tímanum 28.52 sek., í undanúrslitum synti hann á 28.31 sek. sem var nýtt Akranesmet og þriðja besta afrekið á mótinu.

Ólympíufararnir Anton Sveinn Mckee og Snæfríður Sól voru stigahæstu keppendur mótsins.

Einar bætti þrjú Akranesmet á þessu móti:

50 m. bringusund 28.31 sek., gamla metið átti hann sjálfur á 28.62 sek. sem hann setti á síðasta ári.

50 m. skriðsund 23.72 sek., gamla metið átti Ágúst Júlíusson á 24.20 sek., frá árinu 2015.

100 m. skriðsund 53.28 sek., gamla metið átti Ágúst Júlíusson á 53.98 sek., frá 2018

Kajus Jatautas vann til gullverðlauna í 100 m. baksundi og silfur í 50. m baksundi í 15 ára og yngri flokki. Hann synti í B-úrslit í opnum flokki í báðum sundum í fyrsta sinn, sem er frábær árangur og góð reynsla fyrir Kajus.

Hann bætti sig frá undanúrslitum og í úrslit í báðum sundum.

Sunna Arnfinnsdóttir synti líka mjög flott sund um helgina og varð í fimmta sæti í 200 m fjórsundi og fjórða sæti í 200 m baksundi.

Karen Anna Orlita náði sínu fyrsta lágmarki fyrir Íslandsmeistramótið í 100m skriðsundi, flottur árangur.

Guðbjarni Sigþórsson, Karen Káradóttir, Viktoria Emilia Orlita og Ingibjörg Svava Magnúsardóttir tóku líka þátt á mótinu og stóðu sig mjög vel.