Nafn Friðriks fjarlægt af lista yfir heiðursborgara á Akranesi

Á fundi Bæjarstjórnar Akraness þann 28. nóvember s.l. var rætt um hvort rétt væri að fjarlægja nafn Sr. Friðriki Friðrikssyni, stofnanda KFUM og KFUK, af lista yfir heiðursborgara á Akranesi.

Þann titil veitti bæjarstjórn Akraness honum árið 1947 í tilefni þess að þá voru 35 ár frá stofnun KFUM á Akranesi, en sr. Friðrik var um stuttan tíma starfandi prestur á Akranesi.

Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs nýverið og þar var samþykkt að leggja það til við bæjarstjórn Akraness, að nafn Sr. Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM og KFUK, verði fjarlægt af lista yfir heiðursborgara á Akranesi en þann titil veitti bæjarstjórn Akraness honum árið 1947 í tilefni þess að þá voru 35 ár frá stofnun KFUM á Akranesi.

Á fundi bæjarráðs var einnig samþykkt að breyta reglum Akraneskaupstaðar frá árinu 2017 um val og útnefningu heiðursborgara Akraness. 

Bæjarfulltrúum á hverjum tíma, verði veitt svigrúm til afturköllunar eða niðurfellingu heiðursborgaranafnbótarinnar, komi upp síðar aðstæður, upplýsingar eða atvik, sem kollvarpa ímynd þess einstaklings sem í hlut á hverju sinni.

Í fundargerð Bæjarstjórnar Akraness frá því í nóvember á síðasta ári kemur eftirfarandi fram vegna málsins.

„Tilefni umfjöllunar bæjarstjórnar Akraness var að í nýútkominni bók Guðmundar Magnússonar um ævi sr. Friðriks Friðrikssonar, hefur komið fram vitnisburður manns um að sr. Friðrik hafi leitað á hann. Auk þess hefur fréttaflutningur um fleiri tilvik komið fram. Bæjarstjórn Akraness er brugðið við að heyra frásögn um að sr. Friðrik hafi brugðist trausti barna og með framferði sínu svert titil heiðursborgara Akraness. Bæjarstjórn Akraness vísaði til bæjarráðs að yfirfara reglur um val heiðursborgara og kanna hvernig slíkt val væri endurskoðað.“

Eftir þessa ákvörðun bæjarráðs hafa sjö einstaklingar fengið nafnbótina Heiðursborgari Akraness frá því að slík viðurkenning var veitt í fyrsta sinn árið 1939. Guðrún Gísladóttir er eina konan af þessum sjö.

Eftirtaldir eru heiðursborgarar Akraness.

2018 – Bragi Þórðarson.

2008 – Ríkharður Jónsson.

1982 – Þorgeir Jósefsson.

1975 – Sr. Jón M. Guðjónsson.

1948 – Guðrún Gísladóttir.

1947 – Sr. Friðrik Friðriksson.


1947 – Ólafur Finsen.

1939 – Einar Ingjaldsson.