Galdur – nýr íslenskur söngleikur verður fluttur í Vinaminni

Galdur er nýr íslenskur söngleikur sem fluttur verður í tónleikauppfærslu í Vinaminni. Verkið er eftir Helga Þór Ingason. Það er Kalman listafélag á Akranesi sem stendur að viðburðinum sem hefst kl. 20.00 fimmtudaginn 23. maí. Kalman er styrkt af Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kalman: 

Sagan gerist á Íslandi seint á 17. öld, á erfiðum tímum í íslensku samfélagi. Öfund, illska og fáfræði eru aflvakar atburðarásar þar sem ung stúlka er sökuð um galdra.

Í Galdri er fjölbreytt tónlist, kórlög, einsöngslög með og án kórs og einnig leikin lög. Áhersla á sungna tónlist er mikil.

Höfundur er Helgi Þór Ingason en auk hans standa að verkefninu hópur tónlistarfólks, hljóðfæraleikara og söngvara.

Sögumaður er Þorleifur Hauksson en nokkur helstu einsöngshlutverk eru í höndum Einars Clausen, Kamillu Alfreðsdóttur, Guðjóns V. Stefánssonar og Zophoníasar Odds Jónssonar. Alls 22 söngvarar koma að flutningnum, flestir í kór en nokkrir syngja einnig einsöngshlutverk.

Stjórnandi uppsetningar er Iveta Licha. Hljóðfæraleikur er í höndum Kjartans Valdimarssonar (píanó), Birgis Bragasonar (kontrabassi), Rósu Jóhannesdóttur (fiðla) og Helga Þórs Ingasonar (harmóníka).

Nánari upplýsingar má finna hér: 

Miðaverð er kr. 3.500 en kr. 3000 fyrir Kalmansvini.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt fyrir tónleikagesti.

Allir velkomnir.