78 nemendur útskrifaðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Alls brautskráðust 78 nemendur frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á vorönn 2024 – en útskriftin fór fram við hátíðlega athöfn s.l. föstudag. Frá þessu er greint á vef FVA – nánar hér

Nemendurnir stunduðu nám við 9 mismunandi námsbrautir. 

Skiptingin á námi nemenda var þannig:

  • Rafvirki: 15
  • Rafvirki + stúdentspróf: 1
  • Vélvirki: 1
  • Meistaraskóli: 1
  • Sjúkraliðabraut: 3
  • Opin stúdentsbraut: 29
  • Félagsfræðibraut: 2
  • Náttúrufræðabraut: 15
  • Starfsbraut: 3
  • Viðbótarnám til stúdents eftir iðnám: 9

    Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun og viðurkenningar t.a.m. fyrir ágætan námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gefa verðlaun eru innan sviga:

    Agnes Rún Marteinsdóttir hlaut hvatningaverðlaun (Zontaklúbbur Akraness).

  • Andri Steinn Björnsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Raf-Pro).
  • Kristján Magnússon fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Raf-Pro).
  • Dagur Smári Pétursson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Sjammi).
  • Ole Pétur Ahlbrecht fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (Norðurál).
  • Thelma Björg Rafnkelsdóttir fyrir ágætan árangur í ensku (Landsbankinn).
  • Þórður Freyr Jónsson fyrir ágætan árangur í ensku (Landsbankinn).
  • Ingibjörg Svava Magnúsardóttir fyrir góðan árangur í spænsku (Rótarýklúbbur Akraness).
  • Íris Rakel Aðalsteinsdóttir fyrir góðan árangur í íslensku (FVA).
  • Sigurjón Jósef Magnússon fyrir góðan árangur í ensku (Íslandsbanki).
  • Daníel Prizginas fyrir góðan árangur í ensku (Íslandsbanki).
  • Dagný Líf Kristófersdóttir fyrir ágætan árangur í þýsku (Elkem).
  • Aníta Hanna Kristjánsdóttir fyrir ágætan árangur í íslensku (FVA).
  • Arnar Gaui Björnsson fyrir góðan árangur í ensku og þýsku (Penninn Eymundsson).
  • Elsa Maren Steinarsdóttir fyrir ágætan árangur í spænsku (FVA) og stærðfræði (Skaginn 3x).
  • Líf Ramundt Kristinsdóttir fyrir góðan árangur í ensku (Tölvuþjónustan), dönsku (danska sendiráðið), íslensku (FVA), sögu (Sögufélag) og fyrir framlag sitt til umhverfismála og alþjóðlegra samskipta (Soroptimistafélagið).
  • Jóel Þór Jóhannesson fyrir ágætan árangur í efnafræði (Efnafræðifélagið), líffræði (Elkem), dönsku (danska sendiráðið), íslensku og þýsku (Akraborg) og fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar). Hann hlaut einnig menntaverðlaun Háskóla íslands sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur í námi auk eftirtektarverða þátttöku í félagslífi.
  • Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir fyrir frábæran árangur í íslensku (Sjóvá), spænsku (FVA), samfélagsgreinar (FVA), stærðfræði (Stærðfræðifélagið) og íþróttir (FVA). Hún hlaut einnig menntaverðlaun Háskóla Íslands sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur í námi  og eftirtektarverðan árangur í íþróttum. Þá hlaut hún einnig viðurkenningu fyrir góðan námsárangur frá Akraneskaupstað.
  • Elvíra Agla Gunnarsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Sigrún Egla Unnarsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Katrín María Ómarsdóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Nói Claxton fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar).
  • Indíana Mist Daníelsdóttir, Garðar Máni Ágústsson og Przemyslaw Fiszer hlutu viðurkenningu og hvatningu til áframhaldandi náms úr Minningarsjóði Lovísu Hrundar.
  • Ísak Emil Sveinsson sem útskrifaðist í desember sl. hlaut viðurkenningu úr Minningarsjóði Guðmundar P. Bjarnasonar sem Akraneskaupstaður veitir.
  • Ole Pétur Ahlbrecht, nýútskrifaður rafvirki, hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur með vegna meðaleinkunn 9,53.
Ole Pétur Ahlbrecht dúx vorið 2024. Mynd/FVA
Ísak Emil Sveinsson og Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir hlutu verðlaun frá Akraneskaupstað. Mynd/FVA