Fimm fyrrum leikmenn ÍA valdir í A-landsliðshóp Íslands

Fimm fyrrum leikmenn knattspyrnuliðs ÍA hafa verið valdir í A-landsliðshóp Íslands sem mætir Englandi og Hollandi í júní. 

Um er að ræða vináttuleiki og fer leikurinn gegn Englendingum fram á Wembley í London þann 7. júní og leikurinn gegn Hollandi fer fram á De Kuip vellinum í Rotterdam þann 10. júní.  

Bjarki Steinn Bjarkason, Ísak Bergmann Jóhannesson, Stefán Teitur Þórðarson, Hákon Arnar Haraldsson og Arnór Sigurðsson eru í hópnum. 

Åge Hareide er þjálfari liðsins en Jóhannes Karl Guðjónsson verður ekki honum til aðstoðar þar sem að Jóhannes Karl hefur tekið að sér þjálfun AB í Danmörku. 

Hópurinn er þannig skipaður. 

  • Hákon Rafn Valdimarsson – Brentford FC – 9 leikir
  • Elías Rafn Ólafsson – C. D. Mafra – 6 leikir
  • Patrik Sigurður Gunnarsson – Viking FK – 4 leikir
  • Kolbeinn Birgir Finnsson – Lyngby Boldklub – 10 leikir
  • Guðmundur Þórarinsson – OFI Crete F.C. – 15 leikir
  • Sverrir Ingi Ingason – FC Midtjylland – 49 leikir, 3 mörk
  • Daníel Leó Grétarsson – Sonderjyske Fodbold – 17 leikir
  • Hlynur Freyr Karlsson – FK Haugesund – 1 leikur
  • Brynjar Ingi Bjarnason – HamKam – 16 leikir, 2 mörk
  • Bjarki Steinn Bjarkason – Venezia FC – 2 leikir
  • Alfons Sampsted – FC Twente – 21 leikur
  • Ísak Bergmann Jóhannesson – F. Düsseldorf – 25 leikir, 3 mörk
  • Stefán Teitur Þórðarson – Silkeborg IF – 19 leikir, 1 mark
  • Hákon Arnar Haraldsson – LOSC Lille – 17 leikir, 3 mörk
  • Jóhann Berg Guðmundsson – Burnley F.C. – 91 leikur, 8 mörk
  • Arnór Ingvi Traustason – IFK Norrköping – 56 leikir, 6 mörk
  • Kristian Nökkvi Hlynsson – AFC Ajax – 1 leikur
  • Arnór Sigurðsson – Blackburn Rovers F.C. – 31 leikur, 2 mörk
  • Willum Þór Willumsson – Go Ahead Eagles – 9 leikir
  • Mikael Egill Ellertsson – Venezia FC – 15 leikir, 1 mark
  • Mikael Neville Anderson – AGF – 26 leikir, 2 mörk
  • Jón Dagur Þorsteinsson – OH Leuven – 35 leikir, 4 mörk
  • Orri Steinn Óskarsson – FC Kobenhavn – 8 leikir, 2 mörk
  • Andri Lucas Guðjohnsen – Lyngby Boldklub – 22 leikir, 6 mörk