FVA fékk styrk úr Sprotasjóði

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla úthlutaði nýverið tæplega 60 milljónum kr. til skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2024-2025. Alls fengu 32 verkfefni styrk en umsóknir voru alls 67.

Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi fékk 1,4 milljón kr. fyrir verkefnið „Þróun Módels fyrir starfstengda námslínu“. Bryndís Gylfadóttir, náms- og starfsráðgjafi í FVA, er verkefnastjóri.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla er hjá Rannís. Áherslur sjóðsins árið 2024 voru:

Farsæld barna og ungmenna, með áherslu á umburðarlyndi, fjölbreytileika og inngildingu nemenda.
Teymiskennsla og samstarf.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu þann 30. maí s.l. þar sem að Bryndís Gylfadóttir og Guðrún S. Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafar í FVA tóku á móti styrknum.