Ungir og efnilegir leikmenn semja við uppeldisfélagið í körfunni

Körfuknattleiksfélag ÍA hefur á undanförnum árum verið með öflugt yngri flokka starf – sem hefur skilað félaginu leikmönnum sem eru kjarninn í leikmannahóp meistaraflokks ÍA. 

Nýverið samdi félagið við Óskar Þór Þorsteinsson – og mun hann þjálfa meistaraflokk félagsins, samhliða því að vera yfirþjálfari yngri flokka félagsins. 

Félagið samdi á dögunum við fimm unga og efnilega leikmenn sem eiga eftir að láta að sér kveða á næsta tímabili. 

Leikmennirnir eru Styrmir Jónasson, Daði Már Alfreðsson, Hjörtur Hrafnsson, og tvíburabræðurnir Júlíus og Jóel Duranona.