Minningu Helga Hannessonar haldið á lofti á Írskum dögum

Fjölmenni tók þátt í viðburði á á Írskum dögum þar sem að minningu Helga Hannessonar íþrótta – og sundkennara á Akranesi var haldið á lofti.

Helgi Hannesson var frumkvöðull á þessu sviði og synti reglulega í sjónum við Langasand. Löngu áður en sjósund varð vinsælt á Íslandi.

Sjóbaðsfélag Akraness stóð að skipulagningu viðburðarins líkt og undanfarin ár.

Synt var frá Sementsbryggjunni og komið í land til móts við Guðlaugina á Langasandi. Vegalengdin er um 900 metrar.

Eins og áður segir var vel mætt í Helgasundið.

Guðni Hannesson formaður Sjóbaðsfélags Akraness birti þessar myndir á fésbókarsíðu félagsins.

Kajakræðarar fylgdu sundfólkinu eftir og öryggismálin voru í góðu lagi.