Tvö tilboð hafa borist í þrotabú Skagans 3X – en fyrirtækið óskaði eftir gjaldþrotaskiptum nýverið – þar sem um 130 starfsmenn misstu vinnuna.
Helgi Jóhannesson skiptastjóri þrotabúsins segir í samtali við Morgunblaðið að nýtt tilboð hafi borist sem tekur til allra eigna búsins auk fasteigna þar sem starfsemin hefur verið hýst en eru ekki í eigu þrotabúsins.
Áður hafði komið fram tilboð í hluta rekstursins en það tilboð kom frá Kapp sem vildi kaupa hluta eigna þrotabúsins.
Ekki kemur fram hvaða aðilar standa að nýja tilboðinu en tilboðið barst með milligöngu lögmannsstofu.
Íslandsbanki á veð í eignum þrotabúsins en fasteignirnar á svæðinu eru í eigu Grenja sem með aðsetur á Akranesi en eigandi félagsins er skráður Arnfinnur Teitur Ottesen.
Helgi segir að afstaða hlutaðeigenda til fyrirliggjandi tilboða liggi fyrir áður en langt um líður.