Fjögur tilboð bárust í viðhald gatna og stétta fyrir árið 2024

Fjögur tilboð bárust í verkefnið viðhald gatna og stétta 2024 hjá Akraneskaupstað.

Verkefnin sem á að vinna á þessu ári eru:

  • Yfirlögn malbiks á Leynisbraut.

  • Endurgerð yfirborðs götu neðst á Laugarbraut

  • Hönnun á götum og stígum vegna endurgerðar Kirkjubrautar milli Háholts og Stillholts.

Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var rétt tæplega 157 milljónir kr. Lægsta tilboðið var tæplega 143 milljónir kr, sem er um 9% undir kostnaðaráætlun. Skipulags – og umhverfisráð hefur samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

Eftirfarandi tilboð bárust:

  • Fagurverk ehf. kt: 650116-0460. Tilboð kr. 142.798.000

  • Emkan ehf. Kt: 481002-2140. Tilboð kr. 163.800.000

  • MIG Verk ehf. Kt: 431299-2249. Tilboð kr. 149.642.768

  • Þróttur ehf. Kt: 420369-3879. Tilboð kr. 158.019.090

Kostnaðaráætlun var kr. 156.744.900