Matthías sló draumahöggið á Garðavelli

Kylfingurinn Matthías Þorsteinsson sló draumahöggið á Garðavelli á Akranesi þann 30. júlí s.l. Matthías er félagsmaður í Golfklúbbnum Leyni.

Hann sló með 9-járni á 3. holu Garðavallar og fór boltinn ofaní holuna. 

Matthías er þar með félagi í Einherjaklúbb Íslands. 

Það geta ekki allir verið Einherjar og það sýnir tölfræðin glögglega.

Árlega eru innan við 1% kylfinga sem ná þessum áfanga eða rétt um 130 kylfingar árlega. 

Samkvæmt tölfræðivef Einherjaklúbbsins er Matthías sá 30. sem fer holu í höggi á 3. holu Garðavallar.