Þann 10. nóvember árið 2016 fóru Skagafréttir í loftið og fréttavefurinn á því 8 ára afmæli í dag. 

Jákvæðar fréttir verða áfram rauði þráðurinn í fréttaumfjöllun Skagafrétta.

Lesendur hafa kunnað meta slíkar áherslur. Og með hverju árinu sem líður hefur lesendahópurinn stækkað jafnt og þétt.

Fréttasafnið telur mörg þúsund fréttir, og myndasafn Skagafrétta verður í framtíðinni ómetanleg heimild um mannlífið á Akranesi.

Viðtökur lesenda hafa frá fyrsta degi verið framar vonum.

Við sem stöndum á bak við þetta verkefni erum þakklát fyrir stuðninginn. Markmiðið er að gera enn betur.

Fjölmörg fyrirtæki hafa í gegnum tíðina staðið þétt við bakið á uppbyggingu Skagafrétta. Og á undanförnum mánuðum hafa dyggir lesendur gert slíkt hið sama.

Kærar þakkir fyrir stuðninginn og allar heimsóknirnar. Það er ómetanlegt.

Smelltu hér til að skoða valkostina til að styðja við bakið á skagafrettir.is.