VÍS opnar tímabundið skrifstofu á Akranesi á miðvikudögum og fimmtudögum milli 10-15 í nóvember.
Skrifstofan er staðsett í húsnæði Domusnova, Kirkjubraut 40, og verða þar að jafnaði tveir starfsmenn sem taka vel á móti fólki.
Guðmundur Ólafs og Gísli Ólafsson.
„Við viljum vera til staðar fyrir viðskiptavini okkar og vitum að nálægð skiptir miklu máli. Það er því ánægjulegt að opna hér við Kirkjubraut svo viðskiptavinir geti komið og tekið spjallið við okkar. Viðtökurnar voru framar væntingum á fyrsta degi opnunar í gær og var stöðugur straumur af fólki,“ segir Guðmundur Ólafs, sölu- og þjónusturáðgjafi, glaður í bragði.
Guðmundur Ólafs, sem er uppalinn á Akranesi, verður með fasta viðveru á skrifstofunni og mun taka vel á móti gestum og gangandi ásamt öðrum ráðgjöfum VÍS.