Ýmis tölfræði um valið á Íþróttamanneskju Akraness

Kjörinu á Íþróttamanneskju Akraness 2024 verður lýst þann 6. janúar 2025. Árið 1965 var þessu kjöri lýst í fyrsta sinn og fram til þessa hefur nafnbótin verið Íþróttamaður Akraness en breyting er gerð á nafninu frá og með þessu kjöri. 

Þetta er í 50. sinn sem þetta kjör fer fram hjá Íþróttabandalagi Akraness.

Nánar í þessari frétt:

Alls hafa 22 einstaklingar fengið nafnbótina Íþróttamaður Akraness, 6 konur og 16 karlar. Konur eru samtals með fleiri titla eða 25 alls og karlarnir með 23. 

Ríkharður Jónsson, knattspyrnumaður, var sá fyrsti sem fékk titilinn árið 1965. Sjö ára hlé var á kjörinu og sundmaðurinn Guðjón Guðmundsson var kjörinn árið 1972 – sama ár og hann var kjörinn Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna. Aftur var gert hlé á kjörinu fram til ársins 1977 og hefur kjörið farið fram árlega síðustu 48 ár.

Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir hefur oftast við kjörin Íþróttamaður Akraness eða 7 sinnum alls. Sundkonurnar og fyrrum Olympíufarar, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og Ragnheiður Runólfsdóttir, eru næstar í röðinni með 6 titla. Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er sá karl sem hefur oftast verið efstur í kjörinu eða þrívegis alls. 

Ragnheiður var kjörin Íþróttamaður ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna árið 1991. Guðjón Guðmundsson og Ragnheiður eru þau einu úr röðum ÍA sem hafa fengið þá nafnbót.

Frá árinu 1965 hefur íþróttafólk úr 7 mismunandi íþróttagreinum fengið flest atkvæði í kjörinu á Íþróttamanni Akraness. Sundfólk hefur 22 sinnum verið efst, kylfingar í 11 skipti, og knattspyrnufólk 10 sinnum. Árið 1977 var Jóhannes Guðjónsson kjörinn Íþróttamaður Akraness fyrir afrek sín í tveimur íþróttagreinum, badminton og knattspyrnu.

Sund 22 titlar
Golf 11 titlar
Knattspyrna 10 titlar
Kraftlyftingar 3 titlar
Hestamennska 2 titlar
Karate 1 titlar
Badminton 1 titill

Íþróttamenn Akraness frá upphafi:

Ártal, nafn, fjöldi titla og fjöldi titla íþróttagreinar.

  • 2023: Einar Margeir Ágústsson (1), sund (22.)
  • 2022: Kristín Þórhallsdóttir, (3) kraftlyftingar (3).
  • 2021: Kristín Þórhallsdóttir, (2) kraftlyftingar (2).
  • 2020: Kristín Þórhallsdóttir, (1) kraftlyftingar (1).
  • 2019: Jakob Svavar Sigurðsson, (2) hestamennska (2).
  • 2018: Valdís Þóra Jónsdóttir (7) golf (11).
  • 2017: Valdís Þóra Jónsdóttir, (6) golf (10).
  • 2016: Valdís Þóra Jónsdóttir, (5) golf (9).
  • 2015: Ágúst Júlíusson, (2) sund (21)
  • 2014: Ágúst Júlíusson, (1) sund (20).
  • 2013: Jakob Svavar Sigurðsson, (1) hestamennska (1).
  • 2012: Inga Elín Cryer, (2) sund (19).
  • 2011: Inga Elín Cryer, (1) sund (18).
  • 2010: Valdís Þóra Jónsdóttir, (4) golf (8).
  • 2009: Valdís Þóra Jónsdóttir, (3)golf (7).
  • 2008: Valdís Þóra Jónsdóttir, (2) golf (6).
  • 2007: Valdís Þóra Jónsdóttir, (1) golf (5).
  • 2006: Eydís Líndal Finnbogadóttir, (1) karate.
  • 2005: Pálmi Haraldsson, (1) knattspyrna (10).
  • 2004: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (6) sund (17).
  • 2003: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (5) sund (16).
  • 2002: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (4) sund (15).
  • 2001: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (3) sund (14).
  • 2000: Birgir Leifur Hafþórsson, (3) golf (4).
  • 1999: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (2) sund (13).
  • 1998: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (1) sund (12).
  • 1997: Þórður Emil Ólafsson, (1) golf (3).
  • 1996: Birgir Leifur Hafþórsson, (2) golf (2).
  • 1995: Sigurður Jónsson, (2) knattspyrna (9).
  • 1994: Sigursteinn Gíslason, (1) knattspyrna (8).
  • 1993: Sigurður Jónsson, (1) knattspyrna (7).
  • 1992: Birgir Leifur Hafþórsson, (1) golf (1).
  • 1991: Ragnheiður Runólfsdóttir, (6) sund (11),
    *(Íþróttamaður ársins á Íslandi).
  • 1990: Ragnheiður Runólfsdóttir, (5) sund (10).
  • 1989: Ragnheiður Runólfsdóttir, (4) sund (9).
  • 1988: Ragnheiður Runólfsdóttir, (3) sund (8).
  • 1987: Ólafur Þórðarson, (1) knattspyrna (6).
  • 1986: Ragnheiður Runólfsdóttir, (2) sund (7).
  • 1985: Ragnheiður Runólfsdóttir, (1) sund (6).
  • 1984: Bjarni Sigurðsson, (1) knattspyrna (5).
  • 1983: Sigurður Lárusson, (1) knattspyrna (4).
  • 1982: Ingi Þór Jónsson, (2) sund (5).
  • 1981: Ingólfur Gissurarson, (2) sund (4).
  • 1980: Ingi Þór Jónsson, (1) sund (3).
  • 1979: Ingólfur Gissurarson, (1) sund (2).
  • 1978: Karl Þórðarson, (1) knattspyrna (3).
  • 1977: Jóhannes Guðjónsson, (1) badminton (1) / knattspyrna (2).
  • 1972: Guðjón Guðmundsson, (1) sund (1),
    (*Íþróttamaður ársins á Íslandi).
  • 1965: Ríkharður Jónsson, (1) knattspyrna (1).