68 verkefni fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands

Uppbyggingarsjóður Vesturlands úthlutaði nýverið 48,5 millj. kr. Til 68 verkefna. Þetta var fyrri úthlutun ársins. Alls bárust 111 umsóknir. Verkefnin sem hlutu styrk falla undir þrjá flokka: menningarstyrki, stofn- og rekstrarstyrki menningarmála, og styrki til atvinnu- og nýsköpunarverkefna.

Að venju fengu fjölmörg verkefni á Akranesi styrk.

Til atvinnu- og nýsköpunarverkefna var úthlutað 11,5 mkr. til alls 15 verkefna.

Menningarstyrkir voru veittir fyrir samtals 32,2 mkr. til 47 verkefna, og einnig var 4,7 mkr. úthlutað í 6 stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála.

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er hluti af Sóknaráætlun Vesturlands, sem markar stefnu og framtíðarsýn svæðisins.

Frá árinu 2015 hefur sjóðurinn veitt styrki að heildarupphæð rúmlega 650 mkr. til yfir 570 verkefna.

Í seinni úthlutun ársins sem verður auglýst í ágúst verður hægt að sækja um styrki í atvinnu- og nýsköpunarverkefni.

Á meðal verkefna á Akranesi sem fengu styrk má nefna:
IceDocs kvikmyndahátíðina, Kalman tónlistarfélag, Endurspeglun – Kruss menningarsmiðja, Lilló Hardcore fest, Heimaskagi, Menningarstrætó, Karlakórinn Svanur, og Kellingar á bókasafninu.