Líf tekur sæti á ný í bæjarstjórn og formennsku í bæjarráði

Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraness, tekur sæti á ný bæjarstjórn Akraness frá og með 31. janúar.

Líf hefur verið í fæðingarorlofi frá því í apríl á síðasta ári. Þórður Guðjónsson tekur sæti á ný sem varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. 

Líf mun taka við sem formaður bæjarráðs.  Einar Brandsson bæjarfulltrúi tekur sæti sem varamaður í bæjarráði í stað Guðmundar Ingþórs Guðjónssonar sem víkur úr sæti sínu sem varamaður í bæjarráði.