Norðurálsmótið í knattspyrnu fagnar tímamótum í ár en 40 ár eru liðin frá því að mótið fór fyrst fram. Mótið í ár fer fram dagana 20.-22. júní og verður mótið það 41. frá upphafi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Knattspyrnufélagi ÍA.
Norðurálsmótið er mót fyrir drengi og stúlkur í 7. og 8. aldursflokki í knattspyrnu. Mótið hefur farið ört stækkandi og metfjöldi tók þótt á Norðurálsmótinu sumarið 2024 þegar um 2.500 þátttakendur heimsóttu Akranes í júní. Reiknað er með um 2.800 þátttakendur taki þátt á afmælisárinu í ár.
Meirihluti allra knattspyrnuiðkenda á Íslandi eiga frábærar minningar af Norðurálsmótinu sem hefur átt hin ýmsu nöfn í gegnum tíðina. Norðurálsmótið er fyrsta gistimót næstu kynslóða og andrúmsloftið á svæðinu líkt og um heimsmeistaramót sé að ræða. Yfirskrift mótsins er þó alltaf fyrst og fremst gleði og skemmtun.
„Við hjá Knattspyrnufélagi ÍA, ásamt Norðuráli, leggjum gríðarlega mikinn metnað í að halda sem best utan um yngstu kynslóðirnar og aðstandendur þeirra á þessu fyrsta stóra móti knattspyrnuferilsins. Það er alltaf skemmtilegur tími í aðdraganda mótsins þegar allir bæjarbúar á Akranesi eru á fullu og bærinn að fyllast af fólki allstaðar af frá landinu. Við erum gríðarlega stolt af því að vera að halda mótið í 40. skipti í ár og stolt af því sem Norðurálsmótið hefur orðið. Okkur hlakkar til að taka á móti og bjóða gesti mótsins velkomið á Skagann. Við vonumst auðvitað til þess að allir fari héðan með bros á vör og skemmtilegar minningar,“ segir Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri félagsins.