Á aðalfundi Sundfélags Akraness sem fram fór 24. mars s.l. kom fram hjá bæjarfulltrúum að ný innisundlaug væri efst á forgangslista Akraneskaupstaðar yfir íþróttamannvirki. Þar var sagt að áætlanir kaupstaðarins gangi út á að hafist verði handa á árinu 2028. Sundfélag Akraness sendi frá sér eftirfarandi ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 24. mars s.l.

„Til bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar“

Aðalfundur Sundfélags Akraness haldinn 24. mars 2025 skorar á bæjarstjórn Akraneskaupstaðar að setja hönnun og framkvæmdir við nýja innisundlaug strax í skýran forgang í áætlunum sveitarfélagsins og að staðið verði við loforð um tímasetningar sem gefin hafa verið. Ný sundlaug hefur verið á dagskrá bæjaryfirvalda á Akranesi í yfir 30 ár og á því tímabili hefur framkvæmdum ítrekað verið frestað þrátt fyrir loforð um annað.
Ný sundlaug varðar ekki bara iðkendur sundfélagsins og afreksstarf þess heldur er einnig um að ræða mikilvæga þjónustu við alla íbúa bæjarfélagsins. Sundíþróttin krefst góðrar æfingaaðstöðu og fyrir bættri aðstöðu höfum við í Sundfélagi Akraness barist árum saman.“

Stjórn Sundfélags Akraness var endurkjörin án breytinga. Björn Sigurðsson formaður Sundsambands Íslands ávarpaði fundinn og kom fram í máli hans að Sundfélag Akraness væri til fyrirmyndar að allri umgjörð og innra starfi. Einnig kom fram í máli Björns að hann, fyrir hönd Sundsambands Íslands, vonaði að stutt yrði þangað til að framkvæmdir hæfust á vegum Akraneskaupstaðar við nýja og stórbætta sundaðstöðu á Akranesi.

Bæjarfulltrúarnir Líf Lárusdóttir og Ragnar B. Sæmundsson tóku m.a. til máls á fundinum og lofuðu það góða starf sem Sundfélag Akranes hefur unnið. Einnig tóku þau undir þær áhyggjur sem félagið hefur af aðstöðumálum á Akranesi. Fram kom í máli þeirra að ný 50 m. innisundlaug væri efst á forgangslista Akraneskaupstaðar yfir íþróttamannvirki og að áætlanir geri ráð fyrir að hafist verði handa við hönnun og framkvæmdir á árinu 2028.

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?