Skagamaðurinn Arnar Gunnlaugsson, hefur valið lið sitt fyrir næstu tvo leiki A-landsliðs karla í undankeppni HM 2026. Ísland mætir Úkraínu þann 10. október og Frakkar eru mótherjar Íslands mánudaginn 13. október. Leikið er á Laugardalsvelli. 

Fjórir leikmenn sem hafa leikið með yngri flokkum ÍA og meistaraflokki félagsins eru í hópnum – líkt og í síðustu tveimur leikjum Íslands. 

Þeir eru Bjarki Steinn Bjarkason, Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson.

Ísland er í öðru sæti riðilsins með þrjú stig eftir tvo leiki. Frakkland er í efsta sæti með sex stig og Úkraína í því þriðja ásamt Aserbaísjan með eitt stig.

Hópurinn er þannig skipaður: 

  • Elías Rafn Ólafsson – FC Midtjylland – 9 leikir
  • Hákon Rafn Valdimarsson – Brentford F.C. – 20 leikir
  • Anton Ari Einarsson – Breiðablik – 2 leikir
  • Logi Tómasson – Samsunspor – 10 leikir, 1 mark
  • Mikael Egill Ellertsson – Genoa CFC – 23 leikir, 1 mark
  • Aron Einar Gunnarsson – Al-Gharafa SC – 107 leikir, 5 mörk
  • Daníel Leó Grétarsson – Sonderjyske Fodbold – 26 leikir
  • Sverrir Ingi Ingason – Panathinaikos F.C. – 61 leikur, 3 mörk
  • Guðlaugur Victor Pálsson – AC Horsens – 52 leikir, 4 mörk
  • Bjarki Steinn Bjarkason – Venezia FC – 7 leikir
  • Gísli Gottskálk Þórðarson – Lech Poznan
  • Ísak Bergmann Jóhannesson – 1. FC Köln – 37 leikir, 6 mörk
  • Andri Fannar Baldursson – Kasimpasa S.K. – 10 leikir
  • Stefán Teitur Þórðarson – Preston North End F.C. – 32 leikir, 1 mark
  • Albert Guðmundsson – ACF Fiorentina – 42 leikir, 11 mörk
  • Kristian Nökkvi Hlynsson – FC Twente – 6 leikir, 1 mark
  • Hákon Arnar Haraldsson – LOSC Lille – 24 leikir, 3 mörk
  • Þórir Jóhann Helgason – U. S. Lecce – 20 leikir, 2 mörk
  • Jón Dagur Þorsteinsson – Hertha BSC – 48 leikir, 6 mörk
  • Mikael Neville Anderson – Djurgardens IF Fotboll – 35 leikir, 2 mörk
  • Andri Lucas Guðjohnsen – Blackburn Rovers F.C. – 36 leikir, 10 mörk
  • Brynjólfur Andersen Willumsson – FC Groningen – 3 leikir, 1 mark
  • Sævar Atli Magnússon – SK Brann – 7 leikir
  • Daníel Tristan Guðjohnsen – Malmö FF – 2 leikir