Akraneskaupstaður auglýsti í febrúar s.l. eftir eftir samstarfsaðila til þess að blása lífi í svæðið við Akratorg.
Þar var efst á baugi að selja gamla Landsbankahúsið samhliða því að hefja uppbyggingu á svæðum við Suðurgötu 57, 47 og Skólabraut 24.

Ekkert tilboð barst um kaup á húsinu en nú virðist sem hreyfing sé komin á málið að nýju.
Í fundargerð bæjarráðs kemur fram að fyrirspurn hafi borist um kaup á gamla Landsbankahúsinu. Bæjarstjóra hefur verið falið að vinna málið áfram og svara erindinu.