Akraneskaupstaður hefur sett fram þá hugmynd að lóð við Laugarbraut 6 verði nýtt undir skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. 

Þetta kemur fram í fundargerð velferðar – og mannréttindaráðs Akraness.  

Áhaldahús Akraneskaupstaðar er í húsinu sem er á þessari lóð og er það staðsett við hliðina á Bjarnalaug. Slökkvistöð bæjarins var um margra ára skeið í þessu húsi. 

Nýtt áhaldahús á að rísa við Kalmansvelli 5 – og þar er gert ráð fyrir rými fyrir vinnuhluti Fjöliðjunnar og Búkolla. Þessi bygging hefur verið í umræðunni allt frá árinu 2021 – sjá meira í þessari frétt á skagafrettir.is .

Búkolla, vinnuhluti Fjöliðjunnar og áhaldahús verða sameinuð í nýju 2500 fermetra húsi.

Akraneskaupstaður mun fara í kostnaðargreiningu og leggja fram áætlun um byggingu á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.

Í skipulags- og hönnunarvinnu verður markmiðið að nálægð við aðra þjónustu, s.s. Bjarnalaug og búsetukjarnann við Laugarbraut, nýtist sem best.