Kvennalið ÍA í knattspyrnu hefur fengið liðsstyrk frá Bandaríkjunum fyrir keppnistímabilið í Lengjudeildinni – næst efstu deild Íslandsmótsins. 

Michaela Easter samdi við ÍA nýverið en hún er markvörður, fædd árið 2001. Hún lék með bandarísku háskólunum Marquette og Virgina Tech. Á síðustu leiktíð var hún í Austurríki þar sem hún lék með Pinzgau Saalfelden Frauen í næst efstu deild þar í landi. 


Mynd: Jón Gautur foto