Karlalið ÍA á fjóra leiki eftir á tímabilinu í Bónusdeildinni í körfuknattleik. ÍA er í neðsta sæti deildarinnar og margt þarf að ganga upp hjá liðinu til þess að ÍA haldi sæti sínu í deild þeirra bestur á næstu leiktíð. 

Ef lið eru jöfn að stigum eftir lokaumferðina ræðst lokastaðan á innbyrðisviðureignum. 

ÍA er með verri stöðu gegn Þór Þorlákshöfn ef liðin verða jöfn að stigum. ÍA vann fyrri leikinn með 10 stiga mun, 102:92, en Þór Þ. vann síðari leikinn með 30 stiga mun, 105:75. 

ÍA er einnig með verri stöðu gegn Njarðvík þar sem að Njarðvík vann báða leikina gegn ÍA. Fyrri leikurinn sem fram fór á Akranesi endaði 130:119 eftir framlengingu, og síðari leikurinn endaði 84:71.  

ÍA mætir ÍR-ingum á útivelli föstudaginn 6. mars. Liðin mættust í fyrri umferðinni þann 21. nóvember s.l., og þar hafði ÍA betur, 98:89. ÍR er með 14 stig í 7. sæti deildarinnar.

ÍA er einnig með verri innbyrðisstöðu gegn Álftanesi – en ÍA vann fyrri leikinn með tveggja stiga mun, 76:74, en Álftanes vann síðari leikinn 89:83, eða sex stiga mun. 

Leikurinn gegn ÍR hefst kl. 19:15 og er skorað á stuðningsfólk ÍA að fjölmenna á leikinn. 

ÍA og Ármann eru með 8 stig eftir 18 umferðir. Þessi lið eigast við í lokaumferðinni hér á Akranesi. Ármenningar unnu fyrri leikinn með 19 stiga mun, 102:83.