
Karlalið ÍA í knattspyrnu heldur áfram að safna liði fyrir keppnistímabilið í Bestu deildinni 2026.
Í dag var greint frá því að Markús Páll Ellertsson hafi gengið í raðir liðsins en hann var á mála hjá Triestina á Ítalíu.

Markús Páll æfir nú með ÍA-liðinu sem er í æfingaferð á Tenerife.
Markús Páll er fæddur árið 2006 og er hann uppalinn í Fram.
Samningur hans er til næstu fjögurra ára. Hann er sóknarleikmaður og getur leyst margar stöður á vellinum.
Bróðir Markúsar Páls er A-landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson, sem leikur með ítalska liðinu Genoa.
Miklar breytingar verða á leikmannahóp ÍA fyrir komandi tímabil, eins og sjá má í listanum hé fyrir neðan sem er að finna á fotbolti.net.
Komnir:
Gísli Eyjólfsson frá Halmstad
Guðmundur Þórarinsson frá Noah
Böðvar Böðvarsson frá FH
Rafael Máni Þrastarson frá Fjölni
Hilmar Elís Hilmarsson frá Fjölni (var á láni)
Farnir:
Albert Hafsteinsson
Marko Vardic til Grikklands
Hlynur Sævar Jónsson í Fylki
Guðfinnur Þór Leósson í Fylki
Jonas Gemmer til Danmerkur
Jón Sölvi Símonarson í Breiðablik (var á láni)
Ármann Ingi Finnbogason seldur til Víkings (var á láni hjá Grindavík)
Arnleifur Hjörleifsson alfarið í Njarðvík (var á láni)
Ingi Þór Sigurðsson seldur til Grindavíkur (var á láni)
Árni Salvar Heimisson (var á láni hjá Grindavík)






