
Sundfélag Akraness hélt aðalfund félagsins í gær.
Valdimar Ingi Brynjarsson, formaður félagsins, flutti skýrslu stjórnar og þar kom fram að iðkendum hjá félaginu fer fjölgandi þrátt fyrir áskoranir í aðstöðumálum.

Alls eru 455 iðkendur sem æfa sund hjá félaginu. Í máli formannsins kom fram að félagið standi fyrir stórum áskorunum.
„Stjórn félagsins óttast að erfitt geti reynst að halda úti afreksstarfi eins og verið hefur síðustu ár,“ en þar vitnaði Valdimar Ingi til þess að töluvert brottfall sé hjá iðkendum sem hafa æft í Bjarnalaug og byrja að æfa allt árið um kring í Jaðarsbakkalaug
„Stjórn Sundfélags Akraness er virkilega ánægð með það starf sem unnið er að hjá félaginu. Sundfélag Akraness stendur þó frammi fyrir ákveðnum vanda þegar kemur að brottfalli iðkenda um 11 ára aldurinn þegar þeir færast úr Bjarnalaug yfir í Jaðarsbakkalaug. Að fara að æfa í útilaug allan ársins hring er ekki aðlaðandi fyrir alla krakka og þeir hverfa þá gjarnan til annarra íþrótta eða hætta. Félagið lætur sig dreyma um þétta og kraftmikla sundhópa sem lífga upp á Jaðarsbakkalaug. Einnig lítur út
fyrir niðursveiflu þegar kemur að eldri sundmönnum og afreksstarfinu á næstu 2-3 árum. Ef heldur áfram sem horfið óttast stjórn félagsins að erfitt geti reynst að halda úti afreksstarfi eins og verið hefur
síðustu ár.“
Valdimar Ingi kom einnig inn á aðstöðumál félagsins og formaður Sundsambands Íslands var harðorður í garð bæjaryfirvalda vegna aðstöðuleysis félagsins.
„Eins og fram hefur komið á fjölmörgum aðalfundum félagsins hefur sundfélagið áhyggjur af sundaðstöðunni hér á Jaðarsbökkum. Viðhaldi laugarinnar er ekki sinnt nægilega vel, og að halda úti æfingum allt árið um kring hefur reynst á köflum erfitt þegar veður eru slæm. Bjarnalaug er frábær en loftgæðum þar inni er verulega ábótavant. Kostur væri fyrir félagið að hafa aðgengi að fleiri tímum í Bjarnalaug til að geta sinnt þeirri eftirspurn sem við höfum fyrir þá aldurshópa sem þar æfa.“
Rekstrartekjur félagsins voru rétt tæplega 37 milljónir kr. en rúmlega 2 milljóna kr. tap var á rekstrinum vegna kaupa á nauðsynlegum tímatökubúnaði til mótahalds. Félagið er vel rekið en eigið fé þess er um 14 milljónir kr.
Sundfélag Akraness óskaði eftir styrk frá Akraneskaupstað fyrir kaupum á tímatökubúnaði en þeirri ósk var hafnað – eins og sjá má í þessari frétt á skagafrettir.is.
Á fundinum var sunddómurum sem sinnt hafa dómgæslu á nýliðnu ári færður sérstakur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til dómgæslu á sundmótum.

Stjórn Sundfélags Akraness var endurkjörin án breytinga.
Frá vinstri: Guðmundur Júlíusson meðstjórnandi, Valdimar Ingi Brynjarsson formaður, Maríanna Pálsdóttir gjaldkeri, Guðrún Guðbjarnadóttir varaformaður, Emilia Orlita meðstjórnandi , Þórdís Guðmundsdóttir ritari,, Ágúst Júlíusson meðstjórnandi.

Björn Sigurðsson formaður Sundsambands Íslands ávarpaði fundinn og kom fram í máli hans að Sundfélag Akraness væri til fyrirmyndar að allri umgjörð og innra starfi. Hann var harðorður í garð bæjaryfirvalda og sagði að aðstaða til sundiðkunar og þjálfunar væri óboðleg hér á Akranesi.
Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs tók undir með Birni að staðan væri ekki góð hvað sundaðstöðu varðaði.






