
Tinna Helgadóttir Ludvigsen, margfaldur Íslandsmeistari í badminton, og fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, er að ná frábærum árangri í starfi sínu sem þjálfari hjá franska badmintonsambandinu.
Tómas Þór Þórðarson, fyrrum íþróttafréttamaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins vekur athygli á afrekum Tinnu á fésbókinni í dag.

Foreldrar Tinnu eru frá Akranesi, Helgi Magnússon og Arna Arnórsdóttir, og eru þau búsett á Skaganum.
Íþróttakennarinn Helgi þjálfaði m.a. dóttur sína í badmintoníþróttinni en hann er í fremstu röð á Íslandi sem afreksþjálfari í badminton.
Tinna hefur að undanförnu þjálfað Thom Gicquel og Delphine Delrue sem keppa í tvenndarleik. Þau sigruðu á Super 1000 móti nýverið sem er eitt af fimm sterkustu mótum ársins.
Þau léku til undanúrslita á HM 2025 og í úrslitin á EM 2025.
Tinna er tilnefnd sem þjálfari ársins af evrópska badmintonsambandinu en úrslitin verða kunngjörð í apríl.
Thom Gicquel og Delphine Delrue leika til undanúrslita á laugardag á All England Open – sem er eitt af stærstu mótum hvers árs í badmintoníþróttinni.







