
Karlalið ÍA komst áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ með 4-0 sigri gegn Haukum í Akraneshöllinni s.l. laugardag.
Í dag var dregið í 16-liða úrslitum keppninnar.

ÍA fær heimaleik gegn Grindavík, sem leikur í næst efstu deild, og fer leikurinn á heimavelli ÍA um miðjan maí.
Þessi lið mætast í 16-liða úrslitum:
Vestri/Leiknir – Grótta
Stjarnan – KR
ÍA – Grindavík
Afturelding – Njarðvík
Þróttur – Breiðablik
KA – Ægir
Fylkir – FH
HK – Víkingur




















