Skagarokk 2026 fer fram í Bíóhöllinni á Akranesi 10. og 11. apríl – þar sem að sex hljómsveitir spila. 

Ólafur Páll Gunnarsson stendur á bak við verkefnið og er markmiðið að búa til „mini-festival“ sem verði árlegur viðburður á Akranesi.

Miðasala hefur gengið vel – en það er enn hægt að tryggja sér miða – smelltu hér: 

Föstudagskvöldið 11. apríl verður spilað þungarokk:

Black Sabbath rokkmessa
Múr
Bastarður

Laugardagskvöldið er það önnur músík og örlítið léttari:

Hjálmar
Spacestation
Oyama

Skagarokk var fyrst haldið í Bíóhöllinni á Akranesi árið 1989 og svo aftur 1990. Þar komu mestmegnis fram hljómsveitir frá Akranesi. Árið 1992 stóðu Sigurður Sverrisson og Einar Skúlason að Skagarokki þar sem að stórhljómsveitirnar Jetrho Tull og Black Sabbath komu í íþróttahúsið við Vesturgötu og héldu tónleika.  Skagarokkið hélt áfram árið 1993 og 1994 og þá var Ólafur Páll á meðal skipuleggjenda, og nú 32 árum síðar er verkefnið endurvakið – og spennandi tónlistarviðburðir framundan á Akranesi. 

Nánar á Tix.is þar sem að miðasalan fer fram: