Aðsend grein:  

Blómlegt atvinnulíf er forsenda þess að samfélög fái þrifist og hægt sé að fjármagna alla þá þjónustu sem við viljum veita og þá velferð sem við viljum búa við á Íslandi. Þetta á við alls staðar og einnig í einstökum sveitarfélögum á landinu. Blómlegt og fjölbreytt atvinnulíf innan bæjarfélags eins og Akraness, styrkir þar með ekki bara vinnumarkaðinn sem slíkan,  heldur stækkar um leið efnahagsreikning sveitarfélagsins og gerir okkur kleift að veita betri þjónustu og efla þann hluta sem telst ekki til lögbundinnar þjónustu. Sem sagt: Framkvæma hluti sem okkur finnast mikilvægir, skemmtilegir og fallegir. 

Emil í Blikksmiðjunni

Rekstur fyrirtækis í sveitarfélagi skapar störf, greiðir skatta og gjöld í opinbera sjóði, hefur oftast margföldunaráhrif út fyrir eigin rekstur, það er – býr til umsvif hjá öðrum fyrirtækjum í bænum og hefur þannig enn frekari jákvæð efnahagsleg áhrif. Við þekkjum þetta öll – Emil í Blikksmiðjunni þarf til dæmis að kaupa allskonar vörur og þjónustu sem styðja við hans rekstur. Má þar nefna pappír og raftæki hjá Omnis, kaffi og með því í Einarsbúð, kökur og kruðerí í Kallabakaríi, hádegismat hjá Galito, ræstiþjónustu hjá Faglegum þrifum, endurskoðunarþjónustu hjá Áliti, tölvuþjónustu hjá Tölvuþjónustunni, vöruflutninga hjá ÞÞÞ, þjónustu rafvirkja, bílaverkstæða og pípara. 

En hvernig er staðan á Akranesi?

Það eru flestir sammála um það að atvinnulíf á Akranesi mætti vera öflugra og fjölbreyttara. Nú sækja um 30% bæjarbúa atvinnu utan sveitarfélagsins, flestir annað hvort inn í Hvalfjarðarsveit eða á höfuðborgarsvæðið. Ég er sannfærð um að margir þessara einstaklinga myndu frekar kjósa að vinna í heimahögunum og spara sér þannig akstur og þann tíma og kostnað sem af honum hlýst. 

Hvað getum við gert?

 D-listinn leggur ríka áherslu á að efla atvinnurekstur á Akranesi á því kjörtímabili sem nú fer í hönd. Hvernig gerum við það?

  • Við viljum lækka skatta og gjöld á fyrirtæki
  • Við viljum einfalda ferla, stytta afgreiðslutíma og straumlínulaga þjónustu bæjarins við atvinnulífið
  • Við viljum bæta grunninnviði, þannig að skortur á vatni og rafmagni standi atvinnurekstri ekki fyrir þrifum
  • Við viljum útnefna ákveðinn tengilið innan stjórnkerfis bæjarins, sem ber höfuðábyrgð á að samskipti bæjarins og atvinnurekenda séu fljótleg og skilvirk
  • Við viljum með markvissum aðgerðum sækja til okkar fyrirtæki, sem falla vel að því atvinnuumhverfi sem við viljum sjá
  • Við viljum styðja við nýsköpun og frumlegar hugmyndir
  • Við viljum styðja vel við þann atvinnurekstur, sem nú þegar er fyrir hendi í bænum
  • Við viljum marka skýra stefnu og aðgerðaáætlun í ferðaþjónustu, þar sem við einblínum jafnt á innlendan markað og erlendan og komur skemmtiferðaskipa. Við leggjum höfuðáherslu á að á Akranesi verði byggt hótel innan skamms.
  • Við viljum ekki þvælast fyrir – heldur þvert á móti greiða götu framtakssamra einstaklinga og félaga, sem vilja stunda atvinnurekstur á Akranesi – öllu samfélaginu til heilla.

Bjarnheiður Hallsdóttir.

Höfundur skipar 2. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum í maí.