Grein sú sem frambjóðendur Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit rituðu í síðustu viku um ásælni og afskipti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar af málefnum Hvalfjarðarsveitar og skyndilegt framboð fyrrverandi bæjarstjóra Akraneskaupstaðar til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar hefur vakið vægast sagt hörð viðbrögð bæjarstjórans fyrrverandi. Í umræðuþætti á mbl.is lét hann þung orð falla og taldi greinina verstu pólitísku árás sem hann hefði orðið fyrir á áratuga ferli sínum í stjórnmálum.

Í áðurnefndri grein voru rifjuð upp nokkur atriði í samskiptum áðurnefndra sveitarstjórna og kunn eru af fréttum liðinna ára. Ekkert nýtt kom fram í greininni um þau mál þann tíma er bæjarstjórinn fyrrverandi stóð í stafni Akraneskaupstaðar. Öll eru þau samskipti með þeim hætti sem Íbúahreyfingin í Hvalfjarðarsveit telur að ekki séu til eftirbreytni í samskiptum sveitarfélaga. Engar efnislegar athugasemdir hafa komið fram um greinina en þó gerðust þau gleðilegu tímamót í kjölfar hennar að A-listinn lýsti því yfir að frambjóðendur hans hefðu ekki í hyggju að leita eftir sameiningu við önnur sveitarfélög. Það er góðs viti.

Mörg orð hafa fallið í umræðum um ásælni Akraneskaupstaðar til sameiningar við Hvalfjarðarsveit. Þegar hæst lét varð ekki séð að reynt væri að tempra þá umræðu. Það er engum til framdráttar þegar nú er horft til framtíðar að rifja þau upp en því skal til haga haldið að ekkert hefur verið dregið til baka af þeim orðum sem þar féllu.

Vegna þungra orða bæjarstjórans fyrrverandi í garð áðurnefndrar greinar skulu þó rifjuð upp opinber ummæli er hann lét falla í umsögn til Skipulagsstofnunar um fyrirhugaða uppbyggingu hafnar í landi Galtarlækjar í Hvalfjarðarsveit. Þar segir: „ Akraneskaupstaður hefur á hverjum tíma staðið dyggilega við bakið á þeirri uppbyggingu og oftar en ekki leitt umræðu um hagsmuni svæðisins, þar sem lengst af voru sveitahrepparnir fjórir, og því slagkraftur þeirra í opinberri umræðum meiri með samstöðu og þátttöku sveitarstjórnar stærsta þéttbýliskjarna Vesturlands, Akranes.“ Ekkert lítillæti þarna á ferðinni.

Steininn tekur þó úr síðar í umsögninni þar sem segir: „Í skipulagslýsingunni birtist alveg ný og óvænt staða, sem Akraneskaupstaður gat ekki reiknað með að væri hugsanleg, enda hefði bæði kröftum og fjármunum Akraneskaupstaðar og Faxaflóahafna þá betur verið varið með öðrum hætti frekar en að Hvalfjarðarsveit með landeigendum Galtalækjar einkavæði vinnu og fjármuni sem önnur sveitarfélög og Faxaflóahafnir hafa lag til verkefnisins.“ Þetta eru afar þung orð og mér er það til efs að þyngri orð hafi fallið í samskiptum sveitarfélaga á liðnum árum. Þessa skoðun og orð sín ítrekaði bæjarstjórinn í blaðaviðtali nokkrum mánuðum síðar undir fyrirsöginni: Akraneskaupstaður segir Hvalfjarðarsveit einkavæða vinnu og fjármuni annarra.

Embætti bæjarstjórans á Akranes verður ekki skilið frá þeirri manneskju sem það skipar hverju sinni. Að skoðanaskipti um gjörðir viðkomandi hverju sinni séu dregnar upp sem persónuleg áras á viðkomandi er ekki boðleg umræða hver sem á í hlut. Ekki síst þegar viðkomandi skiptir um lið með óvæntum hætti. Undan því sviðsljósi getur viðkomandi ekki undan vikist. Öll þurfum við að horfast í augu við orð okkar og gjörðir.

Íbúahreyfingin í Hvalfjarðarsveit mun hér eftir sem hingað til leggja sitt lóð á vogarskál bættra samskipta innan sveitarfélagsins sem utan. Við munum horfa fram á veginn en sagan mun alltaf fylgja okkur.

Þóra Margrét Júlíusdóttir.

Höfundur skipar efsta sætið á lista Íbúahreyfingarinnar í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara í Hvalfjarðarsveit þann 16. maí 2026.