Angela Árnadóttir, myndlistarkona og kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, hlaut verðlaun, á framhaldsskólastigi, fyrir verkefnið „Nemendur sem aðgerðasinnar í jafnréttismálum – nemendamiðuð listrannsókn.“
Um er að ræða samkeppni sem jafnréttisnefnd KÍ boðaði til í lok nóvember á síðasta ári. Fram kom í tilkynningu nefndarinnar að samkeppnin næði til allra skólastiga og gæti falið í sér þemaverkefni heilla skóla eða árganga til verkefna einstakra kennara fyrir bekki að jafnvel afmarkaðan hóp nemenda. „Verkefnin þurfa að rúmast undir hatti alhliða jafnréttis og grunnþættinum jafnrétti,“ sagði í kynningu á keppninni.

Þetta kemur fram á vef Kennarasambands Íslands.
Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á níunda þingi KÍ sem fór fram í liðinni viku.
Umsögn dómnefndar:
Verkefnið Nemendur sem aðgerðarsinnar í jafnréttismálum skar sig sérstaklega úr að mati dómnefndar fyrir metnaðarfulla og samfélagslega tengda nálgun. Í verkefninu eru nemendur hvattir til að skoða jafnréttismál gagnrýnið og taka virkan þátt í að móta og miðla eigin afstöðu. Með því að tengja fræðilega umræðu við raunverulega þátttöku og aðgerðir í samfélaginu fá nemendur tækifæri til að þróa bæði þekkingu og borgaralega ábyrgð.
Verkefnið eflir þannig gagnrýna hugsun, samvinnu og lýðræðislega þátttöku en á sama tíma er það skapandi, lærdómsríkt og frumlegt.
Dómnefnd telur verkefnið sterkt dæmi um hvernig skólastarf getur hvatt ungt fólk til virkrar þátttöku í baráttunni fyrir jafnrétti.







