Hallbera Jóhannesdóttir og Kári Geirlaugsson voru sigursæl á Íslandsmeistaramótinu í garpasundi – sem fram fór dagana 24.-25. apríl. 

Kári keppti í flokki 75-79 ára. Hann vann sjö greinar og fékk því sjö gullverðlaun. Hann setti met í garpaflokki í sínum aldursflokki í 100 metra fjórsundi. 
Hallbera sigraði í tveimur greinum og fékk því tvenn gullverðlaun. Hún keppti í flokki 70-74 ára. Hún setti garpamet í 50 metra skriðsundi og 100 metra bringusundi.