Nýverið tók sundfólk úr röðum ÍA og Skallagrími í Borgarnesi þátt á Triton Open sundmótinu sem fram fór í Danmörku. Sameiginlegt lið ÍA og Skallagríms var skipað sundfólki á aldrinum 12-15 ára – og hjá flestum var um fyrstu keppnisferðina að ræða á mót erlendis. Eftir tveggja daga keppni endaði sundhópurinn með góðri heimsókn í Tivólí í Kaupmannahöfn.

Árangur ÍA/Skallagríms var flottur. Boðsundssveit fékk silfurverðlaun í 4×100 metra fjórsundi.

Sveitina skipuðu: Rúna Björk Ingvarsdóttir (ÍA), Sóley Rós Sæmundsdóttir (Skallagrími), Karen Anna Orlita (ÍA) og Luise Ferun Agathe Knappe (Skallagrími).

Karen Anna Orlita frá ÍA vann til gullverðlauna í 200 m skriðsundi, silfur í 50 m skriðsundi og brons í 200 m fjórsundi í flokki 14–15 ára.

Ólöf Oddný Jansen vann til bronsverðlauna í 200 m bringusundi.