Leikskólinn Akrasel verður stækkaður og er gert ráð fyrir að þrjár leikskóladeildir bætist við í Akraseli þegar framkvæmdum verður lokið.
Þetta kemur fram í fundargerð Bæjarráðs þar sem að ráðið lýsir yfir vilja sínum að þessi leið verði valin.

Stefnt er að framkvæmdir hefjist á næstu mánuðum og er gert ráð fyrir að ný bygging tengist við núverandi húsnæði og verði á austurhluta skólalóðarinnar.
Bæjarráð leggur til að verkefnið fari sem fyrst í útboðsferli en málið á eftir að fara í gegnum formlegt skipulagsferli.








