Aðsend grein: 

Ég hef fengið þessa spurningu úr nokkrum áttum síðustu daga. Nú hef ég verið í þessu stússi undanfarnar vikur og get svarað. Það er gefandi að vera í framboði, í raun miklu skemmtilegra en mig hefði grunað. Vinir mínir á listanum hjá Sjálfstæðisflokknum eru frábær félagsskapur og virkilega flott fólk en svo hefur verið gaman og upplýsandi að hitta fólk út um allan bæ. Það er gaman, þá sér maður kraftinn, fagmennskuna og gleðina sem ríkir um allt bæjarfélagið.

Við höfum hitt marga og rætt ýmislegt. Það kröftuga starf sem unnið er í skólum bæjarins er mér hugleikið og þar eru margar flottar hugmyndir sem ég vona að við getum hrint í framkvæmd, börnum og fjölskyldum á Akranesi til hagsbóta. Starfsfólk skólanna brennur fyrir því að gera börnin okkar að flottu fólki sem fúnkerar vel í framtíðarsamfélagi.

Leikskólarnir hafa verið töluvert í umræðunni og þar er unnið frábært og faglegt starf sem við getum verið stolt af. Fjöldi menntaðra starfsmanna á leikskólum á Akranesi er með því hæsta sem gerist á landsvísu. Það er klárt mál að með ört stækkandi samfélagi þurfum við að gæta þess að verða ekki eftirbátar sambærilegra sveitarfélaga þegar kemur að aldri barna sem við tökum á móti. Ég veit að við munum gera betur þegar kemur að aukinni þjónustu við barnafjölskyldur.  

Eldri borgarar eru með frábært starf hér á Skaganum, öflugt fólk sem gerir vel fyrir sitt fólk,   eitthvað sem við mættum öll læra af. Spurðu ekki hvað á að gera fyrir þig heldur hvað þú getur gert fyrir félaga þína. Það eru þó tækifæri hjá eldri borgurum, t.d. myndi aðstaða þeirra taka stakkaskiptum ef skrifstofur Akraness myndu fara á annan stað. Húsnæðið er til staðar en er því miður ekki nýtt undir það sem því var ætlað. Þarna þurfum við að gera betur.  Vonandi tekst það með nýju húsnæði fyrir skrifstofur Akraneskaupstaðar.

Bókasafnið okkar er í raun og veru menningarhús. Þar fer fram mun fjölbreyttara starf en mig hefði órað fyrir. Fjöldi fólks sem rúllar þar í gegn daglega hleypur á hundruðum, ég er ekki viss um að fólk geri sér grein fyrir því. Foreldramorgnar, Ljósmyndaskoðun Kidda Jens og félaga, listasýningar og hin ýmsu “skúmaskot” þar sem fólk leggur stund á nám, listsköpun eða hvað sem er. Gaman væri að geta aukið við og haft aukinn opnunartíma á safninu.  Talandi um menningarhús, þau eru nú nokkur hér á Skaga því ég hef sótt viðburði í Bíóhöllinni og Tónlistarskólanum undanfarnar vikur og þar er nú ekki leikinn vitleysan!  

Til að halda úti og gera betur í ofangreindum flokkum þá þurfum við að afla tekna. Þar kemur atvinnulífið til skjalanna. Með öflugum fyrirtækjum verða til tekjur og störf fyrir íbúa bæjarins og bæinn sjálfan. Það er hlutverk kjörinna fulltrúa, með aðstoð embættismanna, að sjá til þess að hér þrífist öflugt atvinnulíf með öllum ráðum. Við þurfum að vera til þjónustu reiðubúin þegar fyrirtæki sýna því áhuga á að setjast að á Akranesi. Einnig þurfum við að sýna í verki að hér sé allt til staðar sem þarf. Við þurfum að sækja fyrirtæki sem eru að hugsa sér til hreyfings og láta vita að við séum hér fyrir þau. Þar er verk að vinna og ég vona að ég fái tækifæri til þess að taka þátt í þeirri vinnu næstu 4 árin. 

Viktor Elvar Viktorsson. 

Höfundur skipar fjórða sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum í maí 2026.