Gojko Sudzum, einn besti leikmaður Bónusdeildarinnar í körfuknattleik hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA.

Miðherjinn var gríðarlega öflugur á fyrri hluta tímabilsins en meiðsli í hné setti strik í reikninginn hjá honum um mitt tímabilið. Hann var framlagshæsti leikmaður ÍA á tímabilinu – með 23 stig að meðaltali og 11 fráköst að meðaltali í leik. 

ÍA náði ekki að halda sæti sínu í efstu deild en Sudzum mun leika með liðinu í næstu efstu deild á næsta tímabili – en mörg lið í Bónusdeildinn höfðu áhuga á að fá hann í sínar raðir.  

Samningur Sudzum er til þriggja ára eða út leiktíðina 2029. Hann er 31 árs Bosníumaður, og kom til ÍA sumarið 2025.