Kung fu, asískur matarvagn á Akranesi, mun loka á næstunni en þetta kemur fram í tilkynningu.
Matarvagninn opnaði í febrúar árið 2024 en nú er komið að kveðjustund eins og það er orðað í tilkynningunni sem er hér fyrir neðan.

„Öll ævintýri eiga sér upphaf og endi, og nú er komið að leiðarlokum hjá matarvagninum okkar. Við höfum ákveðið að loka Kung Fu og viljum nota tækifærið og þakka ykkur öllum kærlega fyrir samfylgdina og allar góðu stundirnar við vagninn. Við ætlum að hafa opið eins og venjulega út þessa viku til að kveðja ykkur almennilega.“








