Aðsend grein:  

Undirstaða öflugs samfélags er kraftmikið atvinnulíf, við þurfum að sækja störfin heim. Þannig hefst stefnuskrá Framsóknar og frjálsra fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og ekki að ástæðulausu. Reynsla og áföll síðustu ára hafa sýnt hversu mikilvæg atvinnumál eru fyrir framtíð Akraness og af hverju þau eru eitt af mikilvægustu kosningamálunum í ár. 

Akranes var lengi vel útgerðarbær þar sem sjávarútvegur var burðarás atvinnulífsins. Sú mynd hefur vissulega breyst með tímanum og bera Skagamenn enn vonir og væntingar til endurvakningar í atvinnugreininni. Fiskvinnsla er þó mikilvægur partur atvinnulífsins og má þar nefna öflug fyrirtæki á borð við Akraborg, Norðanfisk og Vigni þar sem þekking, starfskraftur og verðmætasköpun í greininni lifa góðu lífi á Akranesi. Með tilkomu Sementsverksmiðjunnar festi Akranes sig jafnframt í sessi sem mikilvægt iðnaðarsamfélag. Í dag er sú starfsemi í gjörbreyttri mynd og á svæðinu sem áður hýsti verksmiðjuna rís nú glæsilegt íbúðarhverfi. Þessi breyting endurspeglar hvernig atvinnulíf bæjarins hefur tekið miklum umbreytingum og kallað á aðlögun samfélagsins að nýjum tímum.

Þrátt fyrir þessar breytingar er margt sem við getum verið stolt af. Á Akranesi starfa fjölmörg öflug fyrirtæki og hér er fjölbreytt þjónusta sem gerir íbúum kleift að sækja daglega nauðsynjaþjónustu án þess að þurfa að fara út fyrir bæjarmörkin. Sama á við um atvinnusvæðið á Grundartanga, sem er eitt mikilvægasta atvinnusvæði sveitarfélagsins. Um 60% starfsfólks stærstu fyrirtækjanna þar er búsett á Akranesi, sem undirstrikar hversu nátengt svæðið er samfélaginu okkar.

Framundan eru mikilvæg verkefni tengd atvinnulífi. Ný bæjarstjórn þarf að leggja aukna áherslu á að skapa fleiri störf innan sveitarfélagsins. Sterkt og fjölbreytt atvinnulíf er ein af meginforsendum sjálfbærs samfélags – það styrkir tekjustofna sveitarfélagsins, eykur aðdráttarafl bæjarins fyrir nýja íbúa og leggur grunn að áframhaldandi uppbyggingu þjónustu og innviða.

En hvar liggja tækifærin fyrir Akranes? Skipulagt hefur verið stórt atvinnusvæði upp í flóa sem er tilbúið til uppbyggingar. Á sama tíma höfum við hins vegar misst af tækifærum á öðru mikilvægu atvinnusvæði, Grjótkelduflóa, þar sem skipulagsvinna hefur ekki verið sett í forgang á kjörtímabilinu. Það er miður og eru dæmi um það að fyrirtæki hafa bakkað frá Akranesi sem valkost í uppbyggingu þar sem skipulagið var ekki tilbúið. Það skiptir því máli að sveitarfélagið sé tilbúið með skýrt skipulag til að geta gripið tækifærin þegar þau gefast.

Ferðaþjónusta er önnur atvinnugrein sem býður upp á vöxt. Gleðilegt er að sjá metnaðarfulla aðila stíga fram með áform sem fela ekki aðeins í sér uppbyggingu hótels, heldur einnig líf og viðspyrnu í miðbænum. Endurbygging Landsbankahússins í 22 herbergja hótel með veitingastað og veislusal er dæmi um verkefni sem getur haft jákvæð áhrif bæði á atvinnulíf og bæjarlíf – og styrkt Akranes sem aðlaðandi áfangastað.

Hættum að bíða. Sækjum störfin heim!

Framsókn og frjálsir hafa skýra sýn í atvinnumálum: við ætlum að sækja störfin heim. Það gerum við með markvissum aðgerðum, raunhæfum lausnum og í samstarfi við atvinnulífið.

  • Tryggjum að skipulag atvinnusvæða sé tilbúið þegar tækifærin banka upp á, þannig að Akranes sé samkeppnishæft þegar fyrirtæki leita að staðsetningu.
  • Forgangsröðum uppbyggingu á atvinnusvæðum, þar á meðal Grjótkelduflóa, og nýtum tækifæri í hátækni og nýsköpun.
  • Einföldum ferla og bætum þjónustu sveitarfélagsins við fyrirtæki, svo frumkvæði sé hvatt áfram en ekki heft.
  • Eflum fjölbreytni atvinnulífsins, með því að styðja jafnt við iðnað, þjónustu og ferðaþjónustu.
  • Nýtum styrkleika Akraness – nálægð við höfuðborgarsvæðið, öflugt vinnuafl, sterka innviði og gott samfélag til búsetu.

Við trúum því að öflugt atvinnulíf verði ekki til af tilviljun. Það kallar á skýr markmið, hugrekki í ákvarðanatöku og vilja til að setja atvinnumál í forgang. Með sterkri sýn og skýrum markmiðum leggjum við grunn að fleiri störfum, auknum tekjum og áframhaldandi vexti sveitarfélagsins.  

Þannig byggjum við sjálfbært samfélag – fyrir íbúana, atvinnulífið og framtíð bæjarins.

Sædís Alexía Sigurmundsdóttir

Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sæti á lista Framsóknar og frjálsra á Akranesi