Óskar Þór Þorsteinsson er hættur sem þjálfari meistaraflokksliðs ÍA í körfuknattleik karla. Þetta staðfestir Birkir Guðjónsson formaður félagsins. 

Óskar hefur einnig þjálfað yngri flokka félagsins en hann verður ekki í því hlutverki áfram. 

Óskar Þór kom til starfa hjá ÍA fyrir tveimur árum eftir að hafa náð góðum árangri sem þjálfari Þórs á Akureyri. Undir hans stjórn sigraði ÍA í næst efstu deild vorið 2025 – og komst þar með upp í efstu deild, Bónusdeildina, eftir 25 ára hlé. 

ÍA náði ekki að halda sæti sínu í Bónusdeildinni á þessari leiktíð – en liðið endaði í neðsta sæti af alls 12 liðum.

Birkir segir í samtali við Skagafréttir að félagið sé að kanna þjálfaramarkaðinn á Íslandi og línurnar ættu að skýrast á næstu vikum.