Aðsend grein:
Traust á bæjarstjórn verður ekki byggt á loforðum einum saman heldur á
skýrum aðgerðum.
Fyrsta skrefið er gagnsæi. Bæjarbúar eiga að geta séð án fyrirvara í
hvað hver króna fer.
Opið bókhald er ekki valkostur það er nauðsyn. Og þarf að hafa það
þannig að bæjarbúar geta séð lið fyrir lið hvað er verið að eyða í.
Þannig tryggjum við að ákvarðanir séu teknar á upplýstum grunni og að
ábyrgð sé raunveruleg ekki aðeins orðin tóm.
Skýr forgangsröðun skiptir ekki síður máli. Fjármunir bæjarins eru
takmarkaðir og því þarf að nýta þá þar sem þeir skila mestri
verðmætasköpun fyrir samfélagið. Það kallar á festu,kjark og vilja til
að velja og hafna.
Akranes á ekki að vera í samkeppni við aðra staði um að vera
„ásættanlegur kostur“.
Við eigum að stefna hærra. Með markvissri uppbyggingu atvinnulífs,
fjölbreyttari störfum og skýr framtíðarsýn getum við gert bæinn að
eftirsóttum búsetukosti fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga.
Sterkt samfélag verður ekki til af tilviljun. Það byggist á ábyrgri
stjórn, gagnsæi og skýrri stefnu sem fylgt er eftir í verki.

Ellý Sandra Ingvarsdóttir.
Höf.skipar 8. sæti á lista Miðflokksins X-M á Akranesi.








