Aðsend grein:
„Það er gott að búa í Kópavogi,“ sagði Gunnar Birgisson eftirminnilega og það er sjálfsagt rétt. Mér finnst hins vegar best að búa á Akranesi. Hér er ég fædd og uppalin, menntaði mig erlendis og hef búið víða, en þegar ég flutti aftur heim kom aldrei annað til greina en að búa á Akranesi. Þar er fólkið mitt, góðir skólar og leikskólar, náttúruperlur til útivistar, stutt í allt, fjölbreytt íþróttalíf og kjöraðstæður til að ala upp börn. Hér er allt sem ég þarf.

Íþróttabærinn Akranes fyrir öll
Akranes er íþróttabær. Hér er fjölbreytt íþróttalíf fyrir flest sem áhuga hafa á að stunda eða æfa íþróttir eða fylgjast með sem áhorfendur og stuðningsmenn. Yngri hóparnir eiga kost á sundþjálfun, íþróttaskóla, fótbolta á leikskólatíma og þannig mætti áfram telja. Þau sem eldri eru eiga einnig fjölbreytta möguleika m.a. með niðurgreiddum hreyfiúrræðum hjá ÍA í „Sprækum Skagamönnum“ og FEBAN, ásamt því sem í boði er varðandi líkamsrækt hjá einkaaðilum.
En ég segi „flest“ því það er alltaf hægt að gera betur. Mig langar sérstaklega að hrósa þeim sem hafa lagt áherslu á að bjóða upp á íþróttir fyrir öll, en þar má til dæmis nefna FIMA, Sundfélag Akraness, Badmintonfélag Akraness o.fl. Við höfum einnig séð vísi að samvinnu milli aðildarfélaga (fótbolti og fimleikar) og er það vel. Þetta þarf að styðja við. Þarna gætu einnig verið tækifæri fyrir einkaaðila til að bjóða upp á hreyfingu og þjálfun fyrir fullorðið fólk með fötlun og/eða skerta hreyfigetu, í einhvers konar samvinnu við Akraneskaupstað.
Einnig þarf að huga betur að þjálfun þeirra sem eldri eru og passa ekki inn í þau hreyfiúrræði sem í boði eru, til dæmis fyrir eldra fólk sem býr heima en er jafnvel á biðlista eftir annars konar búsetuúrræði. Þar skiptir sköpum að styrkja og efla til að viðhalda og jafnvel bæta færni til daglegra athafna. Eins fyrir þau sem eru í dagstarfi á einum stað og þurfa að sækja t.d. sjúkraþjálfun annað. Þarna gætu legið möguleikar til samþættingar þjónustu við þennan hóp á einum stað.
Stöðug uppbygging á aðstöðu til fjölbreyttrar íþróttaiðkunar
Á Akranesi er fjölbreytt íþróttaflóra. Hér eru 20 aðildarfélög undir merkjum Íþróttabandalagsins sem öll þurfa sína aðstöðu til að þrífast og dafna.
Nýtt og stórglæsilegt íþróttahús var tekið í notkun á Jaðarsbökkum í fyrra. En þá er ekki öll sagan sögð því einnig hefur verið ráðist í miklar endurbætur á íþróttahúsinu við Vesturgötu á síðastliðnum árum. Nú er frábært að sjá t.a.m. Klifurfélagið vera komið með fastan samastað og eins verður spennandi að fylgjast með Kraftlyftingafélaginu sem er að undirbúa flutning aftur í kjallarann á Vesturgötu í stærra rými en áður, sem mun væntanlega bjóða upp á skemmtilega möguleika í starfi þeirra, en starf félagsins var útvíkkað fyrir stuttu með stofnun Lyftingafélags innan þess.
Næst á dagskrá er að byggja nýja innisundlaug ásamt því að ráðast í frekari uppbyggingu á Jaðarsbakkasvæðinu. Ný innisundlaug er ekki bara hagsmunamál fyrir sundfélagið, heldur einnig skólasamfélagið og bygging hennar er stórt lýðheilsu- og forvarnarmál fyrir almenning!
Fjölbreytt hreyfing á mótunarárum
Íþróttastarf er líka forvarnarstarf. Hreyfing og þjálfun í hópi styrkir allt í senn: líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Þetta er því mikilvægur grunnur og öll börn ættu að geta stundað fjölbreytta hreyfingu.
Við þurfum að hækka frístundastyrk í samvinnu við ÍA þannig að það komi ekki til mikilla hækkana á æfingagjöldum á móti. Vinna við þetta er þegar farin af stað með það að markmiði að börn geti prófað og stundað fleiri íþróttir áður en þau velja sér ákveðnar íþróttagreinar til að stunda og æfa. Það skiptir máli fyrir góða almenna hreyfifærni og hreyfigrunn. Ein leið væri að festa frístundastyrkinn við fleiri en eina íþrótt. Aðrar leiðir þarf að skoða, mögulega í samvinnu aðildarfélaga í gegnum ÍA, að það verði ákveðinn samþættur og fjölbreyttur grunnur í þjálfun allra aðildarfélaganna.
Þannig verður hagur barna hafður að leiðarljósi.
Anna Sólveig Smáradóttir.
Höfundur er sjúkraþjálfari, fyrirtækjaeigandi og í 4. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi.